Ber er hver að baki nema sé Þjóðverji.
26.4.2009 | 19:01
Þá er búið að taka þetta af manni.
Ekkert má maður lengur. Týpískt þjóðverjar að skemma þetta fyrir manni.
Samt, hvað eru tuttugu þúsund svona á milli vina?
|
Bannað að ganga ber |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vinur í raun
22.4.2009 | 20:50
Var að fatta að ég á eiginlega enga bloggvini...
Á maður að vera eitthvað leiður yfir því...?
Nei nei.
Ég veit samt að einhverjir hafa lesið þetta blogg,þ.e.vinir mínir sem voru ekki alveg á sama máli um listamannalaunin.
oh well, ágætt að það eru ekki allir á sama máli.
Lifi byltingin.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í kartöflugarðinum heima.
22.4.2009 | 15:28
Var að lesa fyrstu bloggin mín hér, rosalega hef ég verið æst og reið þegar ég skrifaði þetta, ég sem er svo ljúflynd oftast. En það er nú gott að vera reiður og æstur stundum.
Tek hér upp léttara hjal.
Eins og sumir vinir mínir kannski vita þá er það sérstakt áhugamál hjá mér að skoða hús sem eru til sölu á netinu. Ég er algjörlega með puttan á púlsinum með öll hús sem eru til sölu á stórreykjavíkursvæinu og er aðallega í því að skoða þau sem eru í 50 milljónum og upp úr. Way out of my league en ég er farin að sættast betur og betur við spilltan Seltjarnarnes bakgrunn minn og kem alveg út úr skápnum með það að mig langar alveg í einbýlishús með góðum garði og skella kannski potti í garðinn.
Nú langar mig ekkert til að búa á Seltjarnarnesi og fyrir utan að hafa ekki efni á húsi þá nenni ég ekki að þrífa íbúðina mína, hvað þá heilt hús. Þess vegna er ég að reyna að greina hvað það er sem mig raunverulega langar í og niðurstaðan er þessi
Mig langar í minn eigin garð til að rækta kartöflur og gulrætur og kál í.
Hef verið að hugsa um að sækja í skólagörðunum en svo datt mér í hug hvort hægt væri að banka upp hjá nágrönnum og spyrja hvort ég megi setjaniður smá kálgarð - kartöflur gulrætur radísur etc.
Svo var ég líka að horfa hér út um gluggann á Kvennaskólann,og þar er stórt svart flatt þak, nóg af plássi og þar mætti nú aldeilis nýta það rými undir garðinn minn!!
Set þetta í nefnd.
Hot news!!
þetta var líka að dett inn - heyrði um konu frá Sri Lanka sem býr í Köln og notaði íslenska harðfiskbita í curry og það var víst voðalega gott. Góð hugmynd fyrir einhverja þarna!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ah rangur misskilningur....
20.4.2009 | 19:38
Ah ææ rangur miskilningur hjá Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru bara alltaf að ruglast.
Hefði verið gott að kynna sér hlutina aðeins betur áður en það var stillt upp í myndatöku og splæst í þessar auglýsingar. Æææi skiptir ekki - þetta eru bara peningar.
Ég fíl'að dilla dilla, ég fíl'að dilla dilla!!
|
AGS getur ekki haft milligöngu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þurfum við ekki öll bara að læra að kjarna okkur?
17.4.2009 | 11:42
Var að pæla, er ekki bara hægt að senda alla þjóðina á svona 6 til 9 mánaða námskeið hjá Hjallastefnunni. Læra hvað er í boði, hvað ekki, læra að segja kæri vinur, kæra vinkona, borða hollan mat, leika okkur með tréleikföng ... ekki pappír ... og síðast en ekki síst að læra bara að kjarna okkur.
1 2 3 4 5 og kjarna sig!!
áfram Ísland - best í heimi...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aldeilis frábært!
16.4.2009 | 12:33
Aldeilis frábærar fréttir! þetta mun hafa mjög góð áhrif út í samfélagið, virkileg marföldunaráhrif. Gott mál.
|
Lög um listamannalaun samþykkt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um börn og auglýsingar!
19.12.2008 | 02:09
EINFALT:
Mér finnst að Gerber og Pampers fyrirtækin hafi rétt á því að nota börn í auglýsingum sínum.
(þau eru jú aðalkúnnarnir... þannig séð)
Mér finnst ekki rétt að BYR Sparisjóður noti börn í sínum auglýsingum.
Þannig er nú það.
Drögum mörkin einhvers staðar, kæru Íslendingar!! Þó svo BYR standi enn, á hann ekki að mega nota kríli til að biðla til okkar og 'taka fyrsta skrefið'.... Bankar eru bara tæki til þess að GEYMA peningana okkar í - hvorki meira né minna - og ættu að sjá sóma sinn í að hætta að seilast í eitthvað meira. Þessar stofnanir hafa sannað að þær hafa ekki burði til að bera ábyrgð og eru byggðar á loftbólum. Framleiða ekki neitt - og einstaklingarnir á bakvið þessar stofnanir ættu að nýta sköpunarkraft sinn í eitthvað uppbyggilegra en smábarnaauglýsingar til að reyna að glepja fólk og græða á því. Þess vegna þarf samstöðu. Hættum að taka þátt í bullinu!! Er það ekki? Come on - höfum við ekkert lært?
bestu kveðjur
Jólasóla.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Litum og við litum...og lík'okkur það ekki við byrjum upp á nýtt!
5.11.2008 | 20:03
Einmitt það já. Þá er líka bara best að við ákveðum - öll saman, að aflétta skammtímaskuldum okkar landsmanna - yfirdrætti og Visa/Eurokart skuldum o.s.fr., fella niður það sem lagst hefur á íbúðarlánin okkar vegna verðtryggingar síðustu ár svo allir sitji við sama borð. Þá sjáum við kannski fram á að borga einvherntíma af húsunum okkar og getum hætt að fyllast reiði yfir þessu rugli sem er í gangi.
Má ég líka biðja um að stjórnendur bankanna nýju og gömlu, sem og stjórnvöld, veiti almenningi þá lágmarkskurteisi að leggja öll spilin á borðið. Núna. Hætta að koma með eitt og eitt púsl í einu þar sem endalaust er verið að bæta við þessa skrípamynd. Ég vil fá allt ruglið upp á borðið, já núna, svo við getum hætt þessum sandkassaleik og byrjað að taka til. Ekki veitir af í öllum þessum sóðaskap.
|
Ekki hægt að taka aðra ákvörðun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

